Samrunaviðræðum Lífeyrissjóðs verzlunarmanna og Sameinaða lífeyrissjóðsins hætt.

Viðræður um hugsanlegan samruna Lífeyrissjóðs verzlunarmanna og Sameinaða lífeyrissjóðsins hafa staðið yfir undanfarna mánuði. Stjórnir sjóðanna meta það svo að sameining gangi ekki upp eins og staðan er í dag, m.a. vegna mismunandi samsetningu sjóðanna. Þess vegna er það sameiginlegt mat stjórna sjóðanna að rétt sé að hætta viðræðum.