Raunávöxtun Gildis var 17,6% fyrri hluta ársins.

Hrein raunávöxtun Gildis lífeyrissjóðs á ársgrundvelli fyrstu sex mánuði ársins var 17,6% og nafnávöxtun 23,9%. Fjárfestingartekjur á tímabilinu námu 23,5 milljörðum króna og voru 7,7 milljörðum hærri en á sama tímabili í fyrra.

Í fréttatilkynningu frá sjóðnum segir, að þessa góðu afkomu megi einkum rekja til góðrar ávöxtunar á innlendum hlutabréfum sjóðsins, en þau skiluðu 69% raunávöxtun á ársgrundvelli. Innlend skuldabréf gáfu 4,2% raunávöxtun og erlend verðbréf 1,2% raunávöxtun í krónum talið. Gjaldmiðlastýring sjóðsins skilaði mjög góðri afkomu á tímabilinu.

Iðgjöld til sjóðsins voru 4,8 milljarðar króna fyrstu 6 mánuði ársins og hækkuðu um um 26% frá fyrra ári. Greiddur lífeyrir nam 2,9 milljörðum og hækkaði um 21% á milli ára, en réttindi lífeyrisþega hjá Gildi voru hækkuð um 10% 1. janúar 2007 og hafa því samtals verið hækkuð um 17,7% á sl. 2 árum.

Hrein eign Gildis til greiðslu lífeyris nam 240,7 milljörðum króna í lok júní 2007 og hefur hækkað um 25,3 milljarða frá ársbyrjun. Eignir sjóðsins skiptast þannig að 44% eru í innlendum skuldabréfum, 29% í innlendum hlutabréfum og 27% í erlendum verðbréfum.

Í tilkynningunni segir, að fjármagnstekjur sjóðsins hafi lítið breyst frá milliuppgjöri þrátt fyrir óróleika á fjármálamörkuðum og tilheyrandi leiðréttingu í ágúst, þar sem eignir sjóðsins höfðu hækkað verulega í júlímánuði. Staða sjóðsins sé mjög sterk, sjóðurinn sé langtímafjárfestir og uppbygging fjárfestingarstefnu geri ráð fyrir sveiflum á fjármálamörkuðum núna eins og hingað til.