Rannsóknarstyrkur LL verður veittur í vor.

Stjórn Landssamtaka lífeyrissjóða auglýsir hér með eftir umsóknum um  rannsóknarstyrk til verkefna sem tengjast og hafa áhrif á þróun íslenska lífeyriskerfisins.  Styrkurinn nemur  1.200.000 króna.  Úthlutun styrksins  fer fram á aðalfundi Landssamtaka lífeyrissjóða, sem haldinn verður 18. maí n.k. 

Umsóknum skal fylgja:

  •         Greinargóð lýsing á verkefninu og markmiðum þess.
  •         Tímaáætlun, sem gerir grein fyrir framvinu verkefnisins.
  •         Fjárhagsáætlun verkefnisins og framlag samstarfsaðila.

Ekki verður veittur styrkur til verkefna sem þegar er lokið. Þegar fyrir liggur ákvörðun um hver eða hverjir fá styrk verður gerður sérstakur samningur um rannsóknarverkefnið, þar sem fram kemur m.a. lýsing á markmiðum og fyrirhugaðri framkvæmd og hvernig greiðslum verður háttað.  

Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Landssamtaka lífeyrissjóða, Sætúni 1, Reykjavík. Ennfremur má nálgast umsóknareyðublöð hér á heimasíðunni.

Umsóknir þurfa að berast Landssamtökum lífeyrissjóða fyrir 1. maí n.k. Öllum umsóknum verður svarað. 

Allar nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, Hrafn Magnússon í síma 563 6450 eða á netfanginu ll@ll.is.

Í fyrra hlaut rannsóknarstyrkinn Guðmundur Sigurðsson, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Styrkurinn beindist að því hvernig lífeyrissjóður standa að mati á orkutapi. Sem liður í þeirri rannsókn voru bornar saman matsaðferðir og niðurstöður annars vegar á orkutapi hjá lífeyrissjóðunum og hins vegar á varanlegri örorku samkvæmt skaðabótalögum.