Ráðstefna um atvinnumál 45 ára og eldri n.k. miðvikudag.

Er æskudýrkun í starfsmannamálum valdandi þess að margt fólk 45 ára og eldra, með fulla starfsorku, á erfitt með að fá vinnu?  Ráðstefna um stöðu miðaldra fólks á vinnumarkaði  verður haldin n.k. miðvikudag, 19. maí, í Kiwanishúsinu, Engjateigi 11, Reykjavík, og hefst kl. 13.00.  Fjölmörg samtök standa að ráðstefnunni, þ.á.m. Landssamtök lífeyrissjóða.