Nýr framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins.

Arnaldur Loftsson, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins sem rekinn er af KB banka. Arnaldur hefur unnið hjá KB banka í fimm ár og verið framkvæmdastjóri Séreignalífeyrissjóðsins síðastliðin 3 ár en rekstur hans er einnig í umsjón bankans.  Hafliði Kristjánsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hefur nú tekið við starfi framkvæmdastjóra Sölu- og markaðssviðs KB banka.