Nýkjörin stjórn tekur við rekstri Íslenska lífeyrissjóðsins

Hinn 31. október s.l. tók nýkjörin stjórn við rekstri Íslenska lífeyrissjóðsins af Láru V. Júlíusdóttur umsjónaraðila sjóðsins sem skipuð var af Fjármálaeftirlitinu 18. mars s.l.

Nýja stjórn skipa:

  • Atli Atlason framkvæmdastjóri
  • Bragi Gunnarsson lögfræðingur
  • Brynjar Þ. Guðmundsson viðskiptafræðingur
  • Jón Snorri Snorrason lektor
  • Þórir Óskarsson tryggingastærðfræðingur

Varamenn:

  • Bergþóra Sigurðardóttir forstöðumaður
  • Ingólfur Guðmundsson viðskiptafræðingur
  • Sigríður Hanna Jóhannesdóttir fjármála- og skrifstofustjóri

Fyrsti stjórnarfundur nýrrar stjórnar var haldinn 5. nóvember þar sem Brynjar Þ. Guðmundsson var kosinn formaður stjórnar. Framkvæmdastjóri sjóðsins er Tryggvi Guðbrandsson.