Ný tækifæri til atvinnuþátttöku - ráðstefna.

Ný tækifæri til atvinnuþátttöku er yfirskrift ráðstefnu sem Öryrkjabandalag Íslands og Vinnumálastofnun standa fyrir í samvinnu við Alþýðusambandið og Samtök atvinnulífsins. Ráðstefnan verður haldin fimmtudaginn 22. mars í Gullhömrum og hefst kl. 9.00. Skráning á ráðstefnuna er á heimasíðu Öryrkjabandalagsins: http://www.obi.is     Sjá hér einnig dagskrána.