Nafnávöxtun LSR 5,1% í fyrra, sem svarar til - 0,8% hreinnar raunávöxtunar.

Nafnávöxtun LSR var 5,1% á árinu 2007 sem svarar til -0,8% hreinnar raunávöxtunar samanborið við 10,9% hreina raunávöxtun árið 2006. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu 5 ár er 8,7% og síðustu 10 ár 5,7%.
Um síðustu áramót voru samanlagðar eignir Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) og Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga (LH) 340 milljarðar króna og höfðu þær aukist um 36 milljarða frá árinu á undan. Eignir LSR voru tæplega 317 milljarðar og eignir LH rúmlega 23 milljarðar. Nafnávöxtun innlendra skuldabréfa var 10,1% sem svarar til 4,0% raunávöxtunar. Ávöxtun innlendra hlutabréfa var 2,2% en til samanburðar lækkaði úrvalsvísitala Kauphallar Íslands um 1,4% á árinu. Ávöxtun erlendra hlutabréfa, að teknu tilliti til gjaldeyrisvarna, var -2,7%.
Til samanburðar má geta þess að heimsvísitala hlutabréfa (MSCI) lækkaði í íslenskum krónum talið um 5,9%. Ávöxtun erlendra skuldabréfa var 5,1%. Í árslok 2007 voru 52,9% af verðbréfaeignum sjóðsins í innlendum skuldabréfum, 2,6% í erlendum skuldabréfum, 15,9% innlendum hlutabréfum og 28,6% í erlendum hlutabréfum.

B-deild LSR
Heildareignir B-deildar LSR námu 203 milljörðum króna í lok árs 2007 en 185,4 milljörðum króna í lok árs 2006. Nafnávöxtun B-deildar LSR var 5,3% á árinu 2007 sem svarar til -0,6% hreinnar raunávöxtunar samanborið við 11,0% hreina raunávöxtun árið 2006. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu 5 ár er 8,8% og síðustu 10 ár 5,9%. Verðbréfaeign deildarinnar í árslok 2007 skiptist þannig að 52,9% voru í innlendum skuldabréfum, 2,3% í erlendum skuldabréfum, 16,2% í innlendum hlutabréfum og 28,6% í erlendum hlutabréfum.

A-deild LSR
Heildareignir A-deildar LSR námu 107,2 milljörðum króna í lok árs 2007 en 91,2 milljörðum í lok árs 2006. Nafnávöxtun A-deildar LSR var 4,6% á árinu 2007 sem svarar til -1,3% hreinnar raunávöxtunar samanborið við 10,9% hreina raunávöxtun árið 2006. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu 5 ár er 8,6% og síðustu 10 ár 5,5%. Í árslok 2007 voru 52,8% af verðbréfaeignum deildarinnar í innlendum skuldabréfum, 3,0% í erlendum skuldabréfum, 15,5% í innlendum hlutabréfum og 28,7% í erlendum hlutabréfum.

Séreign LSR
Ávöxtun fjárfestingarleiða Séreignar LSR var misjöfn á síðasta ári. Nafnávöxtun Leiðar I var 4,3% sem svarar til -1,6% hreinnar raunávöxtunar. Nafnávöxtun Leiðar II var 6,1% sem svarar til 0,2% hreinnar raunávöxtunar. Hrein raunávöxtun Leiðar III, sem er bundinn innlánsreikningur, var 6,4% á síðasta ári. Við samanburð á ávöxtun Séreignar LSR við ávöxtun A- og B-deildar sjóðsins er rétt að hafa það í huga að skuldabréf eru gerð upp á markaðsvirði í séreigninni en á kaupkröfu í öðrum deildum. Heildareignir Séreignar LSR námu 6,6 milljörðum króna í árslok 2007 og jókst hrein eign sjóðsins um 905,9 milljónir króna eða 16,0%. Verðbréfaeign Leiðar I í árslok 2007 skiptist þannig að 53,1% voru í innlendum skuldabréfum, 2,4% í erlendum skuldabréfum, 15,2% í innlendum hlutabréfum og 29,3% í erlendum hlutabréfum. Verðbréfaeign Leiðar II um áramót var þannig að 74,5% var í innlendum skuldabréfum, 3,4% í erlendum skuldabréfum, 7,8% í innlendum hlutabréfum og 14,3% í erlendum hlutabréfum.

Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga
Heildareignir LH í árslok 2007 námu 23,1 milljarði króna en í árslok 2006 voru þær 22,1 milljarður króna. Nafnávöxtun Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga var 4,4% á árinu 2007 sem svarar til -1,5% hreinnar raunávöxtunar samanborið við 11,1% hreina raunávöxtun árið 2006. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu 5 ár er 8,8% og síðustu 10 ár 5,6%. Verðbréfaeign sjóðsins í árslok 2007 skiptist þannig að 50,7% voru í innlendum skuldabréfum, 2,8% í erlendum skuldabréfum, 15,7% í innlendum hlutabréfum og 30,8% í erlendum hlutabréfum.