Mjög góð ávöxtun hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins í fyrra.

Nafnávöxtun Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins var 13,72% á árinu 2003 sem svarar til 10,54% hreinnar raunávöxtunar samanborið við 1,38% neikvæða hreina raunávöxtun árið 2002. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu 5 ár er 3,70% og síðustu 10 ár 4,62%. Heildareignir Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins í árslok 2003 námu 146,2 milljörðum króna.

Ávöxtun allra eignaflokka var góð á síðasta ári. Raunávöxtun skuldabréfa í eigu sjóðsins var 5,52% og raunávöxtun innlendra hlutabréfa 38,87%. Raunávöxtun erlendra hlutabréfa sjóðsins var 16,73% í íslenskum krónum. Gripið var til gengisvarna á síðasta ári til að koma í veg fyrir neikvæð áhrif af styrkingu krónunnar á erlendar eignir sjóðsins sem skiluðu sjóðnum 616 m.kr. 

 Af verðbréfaeignum sjóðsins eru 68,9% í skuldabréfum, 11,4% í innlendum hlutabréfum og 19,7% í erlendum hlutabréfum. Endurskoðun ársreiknings LSR er ekki lokið og eru fjárhæðir og ávöxtunartölur birtar með þeim fyrirvara.

Nafnávöxtun B-deildar LSR var 13,6% á árinu 2003 sem svarar til 10,43% hreinnar raunávöxtunar samanborið við 0,75% neikvæða hreina raunávöxtun árið 2002. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu 5 ár er 3,93% og síðustu 10 ár 4,74%. Heildareignir sjóðsins námu 108,2 milljörðum í lok árs 2003 en 90,1 milljarði í lok árs 2002. Raunávöxtun skuldabréfa í eigu B-deildar var 5,54%, raunávöxtun innlendra hlutabréfa 38,86% og raunávöxtun erlendra hlutabréfa var 16,83%. Af verðbréfaeignum sjóðsins eru 71,1% í skuldabréfum, 11,6% í innlendum hlutabréfum og 17,3% í erlendum hlutabréfum.

Nafnávöxtun A-deildar LSR var 14,1% á árinu 2003 sem svarar til 10,94% hreinnar raunávöxtunar samanborið við 3,49% neikvæða hreina raunávöxtun árið 2002. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu 5 ár er 3,29%. Heildareignir sjóðsins námu 35,4 milljörðum króna í lok árs 2003 en 24,4 milljörðum í lok árs 2002. Raunávöxtun skuldabréfa í eigu A-deildar var 5,46%, raunávöxtun innlendra hlutabréfa 38,87% og raunávöxtun erlendra hlutabréfa var 16,5%. Af verðbréfaeignum sjóðsins eru 62,3% í skuldabréfum, 10,7% í innlendum hlutabréfum og 27,0% í erlendum hlutabréfum.

Ávöxtun allra fjárfestingarleiða Séreignar LSR var góð á síðasta ári. Nafnávöxtun Leiðar 1 var 15,93% á árinu 2003 sem svarar til 12,86% raunávöxtunar. Nafnávöxtun Leiðar 2 var 11,97% sem svarar til 9,0% raunávöxtunar. Leið 3 sem er bundinn innlánsreikningur bar í árslok 6,2% raunvexti. Heildareignir Séreignar LSR námu 2.325 m.kr. í árslok 2003 og jókst hrein eign sjóðsins um 862 m.kr. eða 59%. Af verðbréfaeignum Leiðar 1 eru 60,1% í skuldabréfum, 7,4% í innlendum hlutabréfum og 32,5% í erlendum hlutabréfum. Verðbréfaeign Leiðar 2 var 80,3% í skuldabréfum, 2,7% í innlendum hlutabréfum og 17,0% í erlendum hlutabréfum.