Mikil aukning á viðbótarlífeyrissparnaði

Mikil aukning á viðbótarlífeyrissparnaði

 

Kjarasamningur SA og ASÍ sem gerður var í desember 2001 festi helminginn af mótframlagi vinnuveitenda til lífeyrissparnaðar, þannig að frá 1. júlí 2002 fengu þeir launamenn sem ekki hafa tekið þátt í viðbótarlífeyrissparnaði 1% framlag frá vinnuveitanda til ráðstöfunar í séreignarsjóð. Frá þessum tíma leggja því vinnuveitendur annað hvort 1% í séreignarsjóð, ef launamennirnir spara ekki sjálfir af eigin launum, eða 2,2-2,4% ef þeir spara 2% eða meira af eigin launum. 0,4% af framangreindum 2,4% er ríkisframlag, svonefnd tíund, sem vinnuveitendur hafa milligöngu um að veita inn á sparnaðarreikningana. 

Vinnuveitendur greiða sem svarar 9% af launum í lífeyrissparnað

Gögn Kjararannsóknarnefndra sýna mikla aukningu viðbótarsparnaðar á samningstímabilinu. Þannig greiddu vinnuveitendur að meðaltali 6,8% af launum starfsmanna í lífeyrissjóði áður en samið var um viðbótarsparnaðinn vorið 2000. Í mars 2001 var þetta hlutfall orðið 7,6% og í mars 2002 var hlutfallið komið upp í 8,2%.  Ný úrvinnsla á gögnum Kjararannsóknarnefndar, þar sem septembermánuði 2002 er bætt við, leiðir í ljós mikla aukningu á framlögum vinnuveitenda til lífeyrissparnaðar. Niðurstöður fyrir septembermánuð 2002 sýna að framlög vinnuveitenda til lífeyrissparnaðar starfsmanna hafi numið 9,0% af launum að meðaltali.

Mestu breytingarnar hjá verkafólki

Ef starfsstéttin tæknar og sérmenntað starfsfólk er undanskilin eru lífeyrisframlögin orðin afar jafnt dreifð eftir starfsstéttum, eða á bilinu 8,2% - 8,7%, þegar horft er til stöðunnar í september 2002. Það kom raunar á óvart áður, þ.e. þegar gögnin fyrir mars 2002 voru skoðuð, hversu jöfn framlögin voru eftir starfsstéttum en nú kemur í ljós að enn minni munur er milli starfsstétta. Þetta stafar af mikilli aukningu framlaga vinnuveitenda til sparnaðar verkafólks, um 1,1%, iðnaðarmanna, um 0,8% og þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks einnig um 0,8%. Þannig er ótvírætt að breytingin 1. júlí hafi hrundið af stað mestri hreyfingu á sparnaði þessara stétta af eigin launum.

Hve margir spara sjálfir í séreign?

Í gögnum Kjararannsóknarnefndar eru öll lífeyrisframlög vinnuveitenda í einni tölu, hverju nafni sem þau nefnast. Þessum framlögum má skipta í fernt. Í fyrsta lagi eru lög- og samningsbundin 6%  framlög vinnuveitenda. Í öðru lagi eru samningsbundin framlög nokkurra stétta umfram 6%, t.d. flugliða. Í þriðja lagi eru einstaklingsbundnir samningar launamanna við vinnuveitendur sína um viðbótarframlög og í fjórða lagi eru umrædd samningsbundin viðbótarframlög vinnuveitenda. Samningsbundin  viðbótarframlög vinnuveitenda eru með öðrum orðum ekki tilgreind sérstaklega í gögnum Kjararannsóknarnefndar og er því einungis unnt að áætla umfang og þróun þeirra á grundvelli fyrirliggjandi gagna um heildarframlög vinnuveitenda.

Unnið var úr gögnunum með þeim hætti að framlög vinnuveitenda sem námu minna en 7,5% af launum töldust vera 1% framlag.  Framlög á bilinu 7,5-8,4% töldust vera 2% framlög og framlög sem voru 8,5% og hærri töldust meira en 2%. Megin niðurstaða þessarar áætlana er sú að í mars á síðasta ári fengu 45% aðeins 6% lágmarksframlag frá vinnuveitanda og þar af leiðandi fengu 55% launamanna  framlög umfram lágmark. Í september var lágmarksframlag vinnuveitenda orðið 7% og þá bar svo við að einungis 27% fengu þetta lágmark, og spöruðu þannig ekki sjálfir, og þar af leiðandi teljast 73%, eða nálega þrír af hverjum fjórum, hafa tekið þátt í viðbótar lífeyrissparnaði. Fjölgun þeirra sem fengu framlög frá vinnuveitendum umfram lágmark nam 18% (73% í september mínus 55% í mars).

Athyglisvert er hversu mikil aukning er í hópi þeirra sem fá meira en 2% framlög til lífeyrissparnaðar frá vinnuveitanda. Það bendir til þess að hreyfingin sé í þá veru að launamenn nýti sér til fulls 4% skattfrádráttinn vegna séreignarsparnaðar. Þá benda þessi gögn til þess að eitthvað sé um það að launamenn semji við vinnuveitendur sína um frekari framlög í séreignarsjóði en kjarasamningarnir kveða á um. Það er raunar ekki nýtt af nálinni þar sem gögn Kjararannsóknarnefdar sýna m.a. að í mars 2000, þ.e. áður en ákvæði um viðbótar lífeyrissparnað voru tekin upp í kjarasamningum, þá voru allmörg dæmi um milliliðalausa samninga milli launamanna og vinnuveitenda þeirra um viðbótarframlög í lífeyrissjóði sem námu a.m.k. 2%.


 Sjá Fréttabréf Samtaka atvinnulífsins