Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga tekur að sér rekstur Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar.

Hinn 28. desember sl. var undirritaður samningur milli Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar, LsA, og Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga, LSS, um að LSS annist allan daglegan rekstur LsA frá 1. janúar 2007 að telja.  Í því felst að LSS annast allt réttindabókhald, annast útreikning og útborgun lífeyris, annast allt reikningshald fyrir sjóðinn og móttöku, vörslu og ávöxtun iðgjalda.  Rekstur LsA verður þó áfram á kennitölu og undir nafni LsA.  

Sérstök áhersla er lögð á að LSS veiti sjóðfélögum í LsA góða þjónustu með áherslu á öruggar upplýsingar og traustar ráðleggingar.  Útbúið verður sérstakt vefsvæði fyrir LsA á heimasíðu LSS.

 

Samningur þessi er sambærilegur samningum sem LSS hefur gert áður um rekstur Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar, Lífeyrissjóðs starfsmanna Húsavíkur­kaupstaðar og Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar en allir þessir lífeyrissjóðir eru svokallaðir eftirmannsreglusjóðir og hefur þeim verið lokað fyrir nýjum sjóðfélögum.