Lífeyrissjóður Akranesskaupstaðar og Landsbréf h.f. í samstarf.

Nýlega hefur verið undirritað samkomulag um eignastýringu sjóðsins.

Lífeyrissjóður Akranesskaupstaðar og Landsbréf h.f. hafa skrifað undir samning um samstarf og mun Landsbréf annast stýringu eignasafns sjóðsins sem er að fjárhæð rúmlega 700 milljónir króna. Samningurinn er gerður í samstarfi við Landsbankann og Landsbréf á Vesturlandi, sem mun sinna hluta af þjónustu við Lífeyrissjóð Akranesskaupstaðar.