Landssamtök lífeyrissjóða flytja í nýtt húsnæði.

Laugardaginn 30. september n.k. flytja Landssamtök lífeyrissjóða starfsemi sína í nýtt húsnæði að Sætúni 1, Reykjavík.

Nýtt símanúmer frá og með 2.október n.k. verður 563-6450. Allt frá stofnun Landssamtaka lífeyrissjóða í desember 1998 hefur skrifstofa samtakanna verið að Suðurlandsbraut 30, Reykjavík. Nú verður hins vegar flutt í nýtt og glæsilegt húsnæði á aðra hæð hússins að Sætúni 1, Reykjavík. Húsið er á horni Snorrabrautar, Borgartúns og Sæbrautar. Meðal nágranna LL verða Lífeyrissjóðurinn Framsýn, Reiknistofa lífeyrissjóða, Efling - stéttarfélag og Samvinnuferðir -Landsýn h.f.