Landspítalamálið kynnt á Akureyri

Landssamtök lífeyrissjóða og Landspítali efna til sameiginlegs kynningarfundar um viljayfirlýsingu lífeyrissjóða og heilbrigðisráðherra varðandi nýjan Landspítala á Hótel KEA á Akureyri á fimmtudaginn kemur, 12. nóvember, kl. 16:00.
Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra ávarpar samkomuna og þeir sem kynna stöðu spítalamálsins og svara fyrirspurnum þar að lútandi verða Arnar Sigurmundsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Stafa lífeyrissjóðs, Ingólfur Þórisson, framkvæmdastjóri eignasviðs Landspítala, og Jóhannes Gunnarsson, læknisfræðilegur verkefnastjóri á Landspítala.
Fundurinn er öllum opinn.

Hugsanlegt er að boðað verði til fleiri hliðstæðra kynningarfunda á landsbyggðinni ef vel tekst til á Akureyri, enda varðar viljayfirlýsingin málefni sjúkrahúss allra landsmanna og landsmenn allir eru bakhjarlar lífeyrisjóðanna. Fulltrúar lífeyrissjóða fá þarna tækifæri til að ræða um fjárfestingar sínar og fjárfestingarstefnu og fjalla um hvað fyrir þeim vaki með því að standa að viljayfirlýsingunni um nýjan Landspítala.