Landspítalaáform kynnt fyrir lífeyrissjóðum

Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Landspítala, kynnti í dag fyrir fulltrúum lífeyrissjóða breytt áform um uppbyggingu nýs háskólasjúkrahúss í ljósi skýrslu sem hún fékk um málið frá norskum hönnunar- og ráðgjafarfyrirtækjum. Hún mætti á fund á vegum Landssamtaka lífeyrissjóða og með henni þrír aðrir yfirmenn spítalans: Ingólfur Þórisson framkvæmdastjóri tækni og eigna á Landspítala og  verkefnisstjóri undirbúningsvinnu vegna nýs háskólasjúkrahúss, Jóhannes M. Gunnarsson læknisfræðilegur verkefnisstjóri við undirbúning nýs háskólasjúkrahúss  og  Björn Zoëga framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala. Fimmtán fulltrúar lífeyrissjóða hlýddu á kynningu fjórmenninganna og fengu upplýsingar um stöðu málsins.

Framkvæmdaáformin í breyttri mynd eru mjög áhugaverð, sem og sjálft verkefnið. Málið er á frumstigi og það bíður nú nýrrar ríkisstjórnar að taka pólítíska ákvörðun um framhaldið. Fulltrúar lífeyrissjóðanna munu fylgjast með gangi mála. Þeir munu, ef eftir slíku verður leitað, kanna rækilega í samstarfi við stjórnvöld og ráðamenn Landspítala  hvort grundvöllur sé fyrir því að sjóðirnir komi að fjármögnun verkefnisins og á hvern hátt það geti gerst.