Kanna á starfshætti og fjárfestingastefnu lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins

Bakhjarlar lífeyrissjóðanna, samtök launafólks og atvinnurekenda á almennum og opinberum vinnumarkaði, hafa undanfarna mánuði rætt um stöðu og framtíðaruppbyggingu lífeyrissjóða- kerfisins. Þetta er gríðarlegt mikilvægt verkefni og hefur umfang þess vaxið við bankahrunið og afleiðingar þess. Þetta kom fram í ræðu Arnar Sigurmundssonar, formanns Landssamtaka lífeyrissjóða, sem hann  flutti á aðalfundi samtakanna í dag. 

Á þessum vettvang hefur komið fram sú skoðun að ástæða sé til þess að fram fari ítarleg skoðun á starfsemi og fjárfestingum lífeyrissjóðina í aðdraganda bankahrunsins. Þessi mál hafa verið rædd í stjórn LL meðal annars tengslum við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Á næsta reglulega fundi stjórnar Landssamtaka lífeyrissjóða verður lögð fram tillaga um skipa sérstaka nefnd óháðra, óvilhallra og hæfra einstaklinga, sem fái það hlutverk að kanna ítarlega starfshætti og fjárfestingastefnu lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins.

 

Í ljósi þess að meginhluti íslenska lífeyrisssjóðakerfisins hvílir á kjarasamningsbundnum réttindum mun stjórn LL kalla eftir sjónarmiðum heildarsamtaka launafólks og atvinnurekenda á almennum og opinberum vinnumarkaði varðandi afmörkun  og umfang úttektarinnar.

 

Tryggja þarf umfram allt að vandað verði til verka eins og mögulegt er og að vinnubrögð og niðurstöður skýrslu sérfræðingahópsins verði hafin yfir allan vafa. Gangi ofangreint eftir er gert ráð fyrir að nefndin skili skýrslu og tillögum til stjórnar LL fyrir 1. nóvember 2010, sagði Arnar ennfremur.