Hrein raunávöxtun hjá Lífeyrissjóði bankamanna neikvæð um 0,54%.

Raunávöxtun hlutfallsdeildar var -0,73% á síðasta ári en stigadeildar 0,38%. Fimm ára meðaltal raunávöxtunar sjóðsins í heild er 1,98%.

Í árslok síðasta árs greiddi Lífeyrissjóður bankamanna 479 lífeyrisþegum lífeyri samtals rúmar 514 m.kr.,sem er aukning um 14,15%.

Eignir lífeyrissjóðsins voru 19.789 m.kr. um síðustu áramót. Fyrir liggur tryggingafræðileg úttekt á skuldbindingum sjóðsins. Ef litið er til framtíðarréttar eru heildarskuldbindingar hlutfallsdeildar 8,7% umfram eignir og heildarskuldbindingar stigadeildar 2,8% umfram eignir.