Heildareignir Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga yfir 10 milljarðar.

Hrein raunávöxtun Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga var neikvæð um 2,51% á árinu 2002 í samanburði við - 0,71% hreina raunávöxtun á árinu 2001. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu 5 ár er 2,52% og síðustu 10 ár 4,31%.

Heildareignir Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga í árslok 2002 námu 10,5 milljörðum króna. Ávöxtun innlendra skuldabréfa og hlutabréfa var góð á árinu en neikvæð ávöxtun erlendra hlutabréfa dregur heildarávöxtun sjóðsins niður.

Raunávöxtun skuldabréfa í eigu sjóðsins var 6,2% en raunávöxtun innlendra hlutabréfa var 15,5%.  Raunávöxtun erlendra hlutabréfa sjóðsins var neikvæð um 36% í íslenskum krónum. Gripið var til gengisvarna á síðasta ári til að koma í veg fyrir neikvæð áhrif af styrkingu krónunnar á erlendar eignir sjóðsins sem skiluðu sjóðnum 113,1 m.kr. Af verðbréfaeignum sjóðsins eru 69,9% í innlendum skuldabréfum, 14,8% í innlendum hlutabréfum og 15,3% í erlendum hlutabréfum.