Gott ár að baki hjá Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda.

Rekstur Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda gekk vel á síðasta ári. Ávöxtun var með besta móti eða  10,1% hrein raunávöxtun Meðaltal hreinnar raunávöxtuna sl. fimm ár er 4,5% og sl. 10 ár 5,8%.

Heildareignir í árslok 2004 námu 33.592 milljónum króna og vaxa um 5.390 milljónir króna eða 19,1%. Eignarsamsetningi sjóðsins er þannig að um 19% eigna eru í erlendri mynt þá einkum erlend hlutabréf, um 13% eigna eru í innlendum hlutabréfum og innlend skuldabréf nema 68% af eignum í árslok 2004.

 Tryggingafræðilega staða sjóðsins er þannig að heildarskuld-bindingar nema 2% umfram eignir. Hefur staðan batnað um 4,9% milli ára. Auknar lífs- og örorkulíkur þyngja skuldbindingar sjóðsins verulega. Til þess að vega á móti þeim var samþykktum sjóðsins breytt. Breyttar samþykktir ásamt góðri ávöxtun 2004 bæta tryggingafræðilega stöðu sjóðsins. Séreignardeilin gekk vel og var ávöxtun 13,5%. Eignir jukust um 52% eru námu þær í árslok 198 milljónir króna.

Ársfundur Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda verður haldinn fimmtudaginn 14. apríl kl. 16.00 í fundarsal að Skúlagötu 17.