GILDI valinn besti lífeyrissjóðurinn á Íslandi þriðja árið í röð af tímaritinu IPE

Gildi-lífeyrissjóður hefur verið valinn besti lífeyrissjóðurinn á Íslandi árið 2007 af tímaritinu Investment & Pensions Europe (IPE).  Er þetta þriðja árið í röð sem sjóðurinn hlýtur þessi verðlaun.  IPE er fagtímarit um lífeyrismál þar sem fjallað er um það helsta í lífeyrismálum á hverjum tíma í Evrópu.

Árlega fer fram verðlaunaafhending þar sem blaðið verðlaunar lífeyrissjóði sem hafa skarað framúr í sínu heimalandi og í Evrópu.  Að þessu sinni var belgíski lífeyrissjóðurinn Pensioenfonds KBC valinn besti lífeyrissjóðurinn í Evrópu. Verðlaunin voru afhent 15. nóvember sl. á árlegri verðlaunahátið IPE sem að þessu sinni var haldin í Vín. Verðlaun þessi hafa verið afhent undanfarin 7 ár í Evrópu og er þetta í þriðja skiptið sem Ísland er með.