Frjálsi valinn besti lífeyrissjóður smáþjóða

Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur verið valinn besti lífeyrissjóður smáþjóða af fagtímaritinu Investment Pension Europe (IPE). Í umsögn dómnefndar kom meðal annars fram að góð ávöxtun sjóðsins hefði verið byggð á framsýnum fjárfestingarákvörðunum og öflugri áhættustýringu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjóðnum.

Árin 2009-2011 var Frjálsi lífeyrissjóðurinn valinn besti lífeyrissjóður á Íslandi af IPE fagtímaritinu. Í ár og árið 2012 voru ekki veittar viðurkenningar fyrir Ísland sérstaklega heldur keppa sjóðir frá Íslandi nú í flokki smáþjóða, eins og sjóðir átta annarra Evrópulanda með færri en eina milljón íbúa.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem er í rekstri hjá Arion banka, er um 130 milljarðar að stærð og sjóðfélagar eru um 47 þúsund talsins. Árlega veitir tímaritið þeim lífeyrissjóðum verðlaun sem að mati sérfræðinga IPE hafa skarað fram úr í sínu heimalandi og í Evrópu. Breski lífeyrissjóðurinn Pension Protection Fund var valinn besti lífeyrissjóður í Evrópu að þessu sinni.