Framtakssjóðurinn kaupir Vestia

Framtakssjóður Íslands, sem er í eigu lífeyrissjóðanna, hefur keypt eignarhaldsfélagið Vestia ehf. af NBI hf. (Landsbankanum). Átta fyrirtæki fylgja Vestia til Framtakssjóðs en hjá þeim vinna um 6000 manns. Framtakssjóðurinn greiðir Landsbankanum 19,5 milljarða króna fyrir Vestia og bankinn mun jafnframt eignast 30% hlut í sjóðnum.

Fyrirtækin sjö sem eru inni í Vestia eru eftirtalin:

  • Icelandic Group, sem áður hét SH og er alþjóðlegt sjávarútvegsfyrirtæki með samtals 30 dótturfélög og starfsemi í 14 löndum.
  • Teymi sem er eignarhaldsfélag á sviði fjarskipta og upplýsingatækni og á eftirfarandi félög: Vodafone, Skýrr, EJS og HugAx.
  • Húsasmiðjan sem er blóma- og byggingavöruverslun með 16 verslanir um allt land.
  • Plastprent sem er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu plastumbúða og plastfilma.

Fram kemur í tilkynningu, að hlutafé Framtakssjóðsins verði væntanlega tvöfaldað úr 30 milljörðum króna í 60 milljarða króna. Samkomulagið sé með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakannana og samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Framtakssjóður Íslands er sjóður í eigu sextán lífeyrissjóða innan vébanda Landssambands lífeyrissjóða og hlutverk hans er að taka þátt í og móta endurreisn atvinnulífsins.

Landsbankinn segir, að þessi kaup séu mikilvægt skref meðal annars með tilliti til samkeppnissjónarmiða þar sem eignarhald bankans á stórum fyrirtækjum var tímabundin neyðarráðstöfun vegna erfiðra aðstæðna í íslensku efnahagslífi.

Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans segir í tilkynningu að samningurinn sé góður fyrir Landsbankann og þau fyrirtæki sem eru í eigu Vestia. „Þetta er góður samningur fyrir Landsbankann, hvernig sem á það er litið og góður samningur fyrir þau fyrirtæki sem Vestia á. Þau fá nú þann trausta langtíma bakhjarl sem þau þurfa. Bankar eru ekki heppilegir fjárfestar til lengri tíma í óskyldum rekstri. Með því að bindast Framtakssjóði Íslands sterkum böndum mun Landsbankinn gegna mjög veigamiklu hlutverki í endurreisn atvinnulífsins með öðrum hætti en verið hefur fram til þessa og bankinn fagnar því tækifæri sem þessi samningur veitir honum.“

Finnbogi Jónsson, framkvæmdarstjóri Framtakssjóðs Íslands segir að með samkomulaginu eignist sjóðurinn öflug fyrirtæki. „Samstarfið við Landsbankann gerir mögulegt að efla fjárhagslega getu Framtakssjóðsins umtalsvert frá því sem nú er. Með samkomulaginu eignast sjóðurinn öflug fyrirtæki og fær til liðs við sig sterkan hluthafa til að takast á við frekari uppbyggingu. Það eru sex mánuðir frá því að sjóðurinn hóf formlega starfsemi og er hann nú þegar kominn með dreift og sterkt eignasafn. Við vonumst til þess að þegar á næstu misserum verði hægt að skrá fleiri af þessum fyrirtækjum á almennan hlutabréfamarkað og þannig gefa almenningi kost á að eignast beint hlut í þeim.