Í dag gerði Framtakssjóður Íslands bindandi samkomulag við Icelandair Group hf. þess efnis að Framtakssjóðurinn muni fjárfesta í fyrirtækinu fyrir 3 milljarða króna. Samningurinn er gerður með hefðbundnum fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar sem Framtakssjóðurinn mun láta framkvæma á fyrirtækinu.
Eins og kunnugt er eiga íslensku lífeyrissjóðirnir Framtakssjóð Íslands, sem stofnaður var að frumkvæði Landssamtaka lífeyrissjóða í desember á síðasta ári. Sjóðurinn mun skrá sig fyrir 1,2 milljörðum nýrra hluta á genginu 2,5 - alls fyrir 3 milljarða króna.
Með samningnum skuldbindur Icelandair Group sig til að afla eins milljarðs króna að markaðsvirði í nýju hlutafé á sama gengi fyrir 31. júlí nk. en í heild er áætlað að selja hlutafé fyrir 5 milljarða króna.
Samkomulagið miðar við að stærstu lánveitendur Icelandair Group breyti skuldum að fjárhæð 3,6 milljarðar króna í hlutafé miðað við gengið 5, þannig að þeir munu skrá sig fyrir 720 milljón nýjum hlutum. Heildarhlutafjárhækkun mun þannig nema 8,6 milljörðum króna að söluverði.
Við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækisins er gert ráð fyrir að skuldir þess verði lækkaðar um ríflega 10 milljarða króna m.a. með yfirfærslu og sölu á tilteknum eignum sem eru ekki hluti af kjarnastarfsemi félagsins, eins og fram kom í tilkynningu til Kauphallarinnar þann 25. mars sl. Engar skuldir samstæðunnar verða afskrifaðar, að því er segir í tilkynningu.
„Daglegur rekstur samstæðunnar hefur gengið vel að undanförnu, en há fjármagnsgjöld og miklar skammtímaskuldir hafa haft neikvæð áhrif á stöðu félagsins.
Icelandair Group hefur síðan á síðari hluta ársins 2008 unnið náið með Íslandsbanka og öðrum lánveitendum að fjárhagslegri endurskipulagningu og samningurinn markar mikilvægt skref í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins og tryggir fjárhagslega stöðu þess.
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka var ráðgjafi við söluna. Gert er ráð fyrir að fjárfestum og almenningi verði gefinn kostur á að leggja félaginu til nýtt hlutafé í hlutafjárútboðum síðar á árinu," segir ennfremur í tilkynningu.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir í tilkynningu: „Fjárhagsleg endurskipulagning Icelandair Group er nú á lokastigum. Samningurinn við Framtakssjóðinn er afar mikilvægur enda verður hann öflugur bakhjarl félagsins til framtíðar.
Við munum stíga frekari skref til að styrkja og breikka hluthafahópinn og við erum að undirbúa hlutafjárútboð til annarra fagfjárfesta og almennings síðar á árinu. Með samningnum við Framtakssjóðinn styrkist verulega lausafjárstaða okkar og samningar okkar við banka félagsins munu enn frekar styrkja efnahagsreikning félagsins. Ég er þess fullviss að samstarf okkar við Framtakssjóðinn mun styrkja Icelandair Group og auka sóknarfæri ferðaþjónustunnar í náinni framtíð.“