Framkvæmdastjóri Lífiðnar hættir.

Friðjón Rúnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðsins Lífiðnar hefur sagt starfi sínu lausu hjá sjóðnum frá og með 1. október 2005 og mun hann hverfa frá störfum fljótlega til að takast á hendur starf hjá Sjóvá hf. sem framkvæmdastjóri fjárfestingarsviðs. Friðjón hefur starfað hjá sjóðnum frá því árið 1998 eða í um sjö ár og óskar stjórn sjóðsins honum velfarnaðar og þakkar honum fyrir vel unnin störf. Ekki mun verða ráðinn framkvæmdastjóri til frambúðar til sjóðsins fyrst um sinn þar sem viðræður standa yfir við Samvinnulífeyrissjóðinn um sameiningu. Ólafur Sigurðsson, fram­kvæmdastjóri Verðbréfafyrirtækisins Virðingar hf., hefur verið ráðinn fram­kvæmda­stjóri til næstu fjögurra mánaða og mun hann hefja störf fljótlega.