Framkvæmdanefnd skipuð vegna endurskoðunar örorkumats og eflingu starfsendurhæfingar.

Forsætisráðherra hefur ákveðið að skipa framkvæmdanefnd til að fylgja eftir tillögum nefndar um endurskoðun örorkumats og eflingu starfsendurhæfingar. Fram kemur í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu að tillögurnar miði að því að breyta núgildandi örorkumati þannig að það verði sveigjanlegra og taki fremur mið af starfsgetu einstaklingsins en örorku.

Einnig er gert ráð fyrir að starfsendurhæfing verði stórefld og skipulag hennar bætt þar sem m.a. verði lögð áhersla á að saman fari læknisfræðileg endurhæfing og starfsendurhæfing eftir því sem við á og að hún hefjist eins fljótt og hægt er. Þessar tillögur hafi verið samþykktar í ríkisstjórn og eigi framkvæmdanefndin tryggja að þær komi til framkvæmda svo fljótt sem auðið er.

Nefndarmenn eru Bolli Þór Bollason, formaður tilnefndur af forsætisráðuneytinu, Davíð Á. Gunnarsson, tilnefndur af heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Gylfi Arnbjörnsson, tilnefndur af ASÍ, Hallgrímur Guðmundsson, tilnefndur af fjármálaráðuneytinu, Hannes G. Sigurðsson, tilnefndur af SA, Helga Jónsdóttir, tilnefnd af BSRB, Pétur H. Blöndal, tilnefndur af forsætisráðuneytinu, Ragnar Gunnar Þórhallsson, tilnefndur af Öryrkjabandalaginu, Hrafn Magnússon tilnefndur af Landssamtökum lífeyrissjóða og Þór G. Þórarinsson, tilnefndur af félagsmálaráðuneytinu.