Ekki daglega fréttir á heimasíðu LL í sumar!

Nú í sumar verða fréttir um lífeyrismál ekki eins tíðar á heimasíðu LL m.a. vegna sumarleyfa.

Alls hafa 80 fréttir birst á heimasíðu LL frá 10. febrúar s.l. enda hefur margt fréttnæmt borið á góma um lífeyrismál á undanförnum vikum og mánuðum. Nú eru ársfundir lífeyrissjóðanna flestir að baki og því ekki eins mikið framboð af fréttaefni og áður. Eftir sem áður munu birtast fréttir á heimasíðu LL í sumar eftir því sem efni standa til og tök eru á. Næsta frétt birtist hér á síðunni eftir 19. júní n.k.