Eignir lífeyrissjóðanna nálgast 2.000 milljarða króna

Hrein eign lífeyrissjóða var 1.965 milljarðar króna í lok mars og hækkaði um 16,2 milljarða í mánuðinum eða um 0,8%. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Seðlabanka Íslands. Innlend verðbréfaeign hækkaði um 19 milljarða króna og nam rúmlega 1.393 milljörðum í lok mánaðarins. Erlend verðbréfaeign nam um 483 milljörðum króna í lok mars og lækkaði því um 4 milljarða frá fyrri mánuði. Sjóður og bankainnstæður hækkuðu hins vegar um rúma 1,5 milljarða króna á milli mánaða. Seðlabankinn segir vert að taka fram að enn er nokkur óvissa um endanlegt mat á eignum lífeyrissjóðanna.