Eignir lífeyrissjóðanna 1.647 milljarðar króna í árslok 2007. Aukning um 10% milli ára. Erlend verðbréfaeign um 28% af eignum.

Um 10% aukning varð á eigum lífeyrissjóðanna á síðasta ári  miðað við eignir í árslok 2006. Eignir námu alls rúmlega 1.647 milljarða króna í lok desember s.l. miðað við 1.501 milljarða króna í árslok 2006. Aukningin nemur því um 146 milljarða króna. Mesta aukningin var í íbúðabréfum 22,4%.  Sjóðfélagalán hafa aukist um 20,4% á umræddu tímabili og nema nú lán til sjóðfélaga um 8,0% af heildareignum sjóðanna. Heldur dró úr aukningu á innlendum hlutabréfum og erlendri verðbréfaeign vegna lækkunar á verðbréfamörkuðum síðustu mánuði ársins. Seðlabanki Íslands tók saman þessar upplýsingar.

 Eignaflokkar                                  

     Árslok  2006           

  Árslok 2007    

  Breyting í   %      

Útlán og verðbréfaeign

 1.475.5386 m.kr.

1.609.771 m.kr.

9.1%

Verðbréf með föstum tekjum

   682.094 m.kr

 784.423 m.kr

15,0%

Sjóðfélagalán

    109.177 m.kr.

  131.474 m.kr.

20,4%

Verðbréf með breytilegum tekjum

   793.292 m.kr.

  825.349 m.kr.

4.0%

Innlend hlutabréf

   237.127 m.kr.

  239.020 m.kr.

0.8%

Erlend verðbréfaeign

   443.047 m.kr.

  456.993 m.kr.

3,1%

Hrein eign til greiðslu lífeyris

1.500.977 m.kr.

1.646.976 m.kr.

9,7%


Sjá hér efnahagsyfirlit lífeyrissjóða í árslok 2007