Rúmlega 13% aukning varð á eigum lífeyrissjóðanna fyrstu 8 mánuðu ársins miðað við eignir í árslok 2005. Eignir námu alls rúmlega 1.380 milljarða króna í ágústlok miðað við tæplega 1.220 milljarða króna í árslok 2005. Aukningin nemur því um 160 milljarða króna. Mesta aukningin var í erlendum verðbréfum eða 27,4%. Sjóðfélagalán hafa aukist um 14,7% á umræddu tímabili og nema nú lán til sjóðfélaga um 7,7% af heildareignum sjóðanna. Seðlabanki Íslands tók saman þessar upplýsingar.
.
Eignaflokkar |
Árslok 2005 |
31. ágúst 2006 |
Breyting í % |
Útlán og verðbréfaeign |
1.179.883 m.kr. |
1.357.686 m.kr. |
15,1% |
Verðbréf með föstum tekjum |
595.195 m. kr |
651.936 m.kr |
9,5% |
Sjóðfélagalán |
92.505 m. kr. |
106.116 m.kr. |
14,7% |
Verðbréf með breytilegum tekjum |
584.689 m.kr. |
705.751 m.kr. |
20,7% |
Innlend hlutabréf |
187.432 m.kr. |
218.407 m.kr. |
16,5% |
Erlend verðbréfaeign |
298.356 m.kr. |
379.967 m.kr. |
27,4% |
Hrein eign til greiðslu lífeyris |
1.219.528 m.kr. |
1.380.374 m.kr. |
13,2% |