Meðalraunávöxtun síðustu 5 ára nam 10,6%. Innlent hlutabréfasafn sjóðsins sýndi 6,9% ávöxtun á árinu en á sama tíma lækkaði Úrvalsvísitala aðallista Kauphallar Íslands um 1,4%. Uppsöfnuð umframávöxtun LV á innlenda hlutabréfasafnið nemur 102% á síðustu 11 árum umfram hækkun Úrvalsvísitölunnar. Ávöxtun erlenda verðbréfasafnsins var góð á árinu en styrking íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum ásamt veikingu USD dró ávöxtun erlendu verðbréfanna niður. Gengisvarnir drógu verulega úr áhrifum af styrkingu krónunnar.
Eignir og lífeyrisgreiðslur
Unnið er að endurskoðun ársreiknings LV en eignir sjóðsins námu um 268 milljörðum í árslok 2007 og hækkuðu um 28 milljarða á árinu eða um 12%. Á árinu 2007 greiddu 51 þúsund sjóðfélagar til sjóðsins og námu iðgjaldagreiðslur alls 15 milljörðum. Þá greiddu 7 þúsund fyrirtæki til sjóðsins vegna starfsmanna sinna. Á árinu 2007 nutu liðlega 8 þúsund lífeyrisþegar lífeyrisgreiðslna að fjárhæð 4,1 milljarður.
Meðalraunávöxtun 10,6% á síðustu 5 árum
Ávöxtunin var 7% á síðasta ári sem samsvarar tæplega 1% raunávöxtun. Meðalraunávöxtun síðustu 5 ára er 10,6%. Innlent hlutabréfasafn sjóðsins sýndi 6,9% ávöxtun á árinu en á sama tíma lækkaði Úrvalsvísitala aðallista Kauphallar Íslands um 1,4%. Uppsöfnuð umframávöxtun LV á innlenda hlutabréfasafnið nemur 102% á síðustu 11 árum umfram hækkun Úrvalsvísitölunnar. Ávöxtun erlenda verðbréfasafnsins var góð á árinu en styrking íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum ásamt veikingu USD dró ávöxtun erlendu verðbréfanna niður. Gengisvarnir drógu verulega úr áhrifum af styrkingu krónunnar.
Verðbréfakaup 56 milljarðar
Á liðnu ári ráðstafaði sjóðurinn til lánveitinga og hlutabréfakaupa 55,6 milljörðum. Lánveitingar til sjóðfélaga námu 5,1 milljarði, innlend hlutabréfakaup námu 20,6 milljörðum og sala hlutabréfa 22,8 milljörðum. Erlend verðbréfakaup námu 11,3 milljörðum.
Inneignir í séreignardeild 6,4 milljarðar
Inneignir sjóðfélaga séreignardeildar í árslok 2007 námu 6,4 milljörðum sem er hækkun um 16% frá fyrra ári. Ávöxtun deildarinnar var 7% sem samsvarar 1% raunávöxtun. Liðlega 40 þúsund einstaklingar áttu inneign í deildinni í árslok.
“Afkoma sjóðsins á fyrri árshelmingi var góð en á síðari helmingi ársins tóku verðbréfamarkaðir að lækka samfara erfiðleikum á fasteignalánamarkaði í Bandaríkjunum og lausafjárþurrð sem fylgdi í kjölfarið. Innlent hlutabréfasafn sjóðsins sýndi góðan árangur á árinu eða ávöxtun upp á tæp 7% á sama tíma og innlendar hlutabréfavísitölur lækkuðu. Gengisvarnir drógu úr neikvæðum áhrifum styrkingar íslensku krónunnar. En það eru vissulega vonbrigði að geta ekki hækkað lífeyrisréttindi sjóðfélaga um þessi áramót eins og útlit var fyrir þegar árið var hálfnað“ sagði Þorgeir Eyjólfsson forstjóri Lífeyrissjóðs verzlunarmanna.