Aðalfundur LL verður haldinn miðvikudaginn 23. maí 2012, kl. 13 á Grand Hótel Reykjavík, í salnum Hvammi. Samkvæmt gildandi samþykktum LL eiga stjórnir og framkvæmdastjórar aðildarsjóða rétt til setu á fundinum. Hjálagt er að finna dagskrá fundarins ásamt gildandi samþykktum og tillögum að breytingum sem bornar verða upp til samþykktar á fundinum.
Virðingarfyllst,
f.h. Landssamtaka lífeyrissjóða
Arnar Sigurmundsson, formaður stjórnar
Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri
Hjálagt í viðhengjum:
1. Dagskrá aðalfundar LL 2012.
2. Samþykktir LL, dags. 15. maí 2008.
3. Tillaga að breytingum á samþykktum LL.