Stjórn Landssamtaka lífeyrissjóða boðar til aðalfundar samtakanna miðvikudaginn 30. maí n.k. á Grand Hótel Reykjavík, Gullteig. Fundurinn hefst kl. 15.00. Auk venjulegra aðalfundarstafa mun Valgerður Sverrisdóttir, viðskiptaráðherra, halda ræða sem ber yfirskriftina “Framþróun verðbréfamarkaðarins.”
Rétt til setu á aðalfundi eiga stjórnir og framkvæmdastjórar aðildarsjóða LL. Samkvæmt 6. grein samþykkta LL skal atkvæðamagn hvers lífeyrissjóðs í atkvæðagreiðslu á fundum samtakanna að hundraðshluta vera hið sama og hlutfallsleg skipting inngreiddra árgjalda aðildarsjóða til samtakanna á síðasta almanaksári. Stjórn aðildarsjóðs getur óskað eftir að skipta atkvæðum sjóðsins milli fulltrúa hans á aðalfundi og skal þá tilkynna slíkt til skrifstofu samtakanna tveimur dögum fyrir aðalfund.