15.02.2017
Viðtöl og greinar
- Verum í góðu líkamlegur formi. Það örvar heilastarfsemi og eykur vellíðan.
- Þjálfum og styrkjum hæfileika og færni sem við viljum halda vel við.
- Varðveitum barnslega forvitni gagnvart umhverfinu.
- Brjótumst úr viðjum vanans!
Hjólum og hlaupum ekki alltaf sömu leið heldur helst nýja og nýja í hvert sinn.
Kynnumst fleirum, helst þeim sem hafa aðrar skoðanir eða viðhorf eða hafa uppruna og menningarlegan bakgrunn ólíkan okkur.
- Hlustum líka á aðra tónlist en þá sem við höldum upp á. Spilum og syngjum, til dæmis í kór.
- Vinnum með tungumál: lesum, skrifum, ræðum saman. Lærum jafnvel ný tungumál, það reynir á heilafrumurnar!
- Leysum krossgátur og suduko, spilum bridds.
- Notum tölvuna á ýmsa vegu: skrifum tölvupóst, leitumupplýsinga með gúggli og förum í tölvuleiki.
- Spáum í sögu þjóðar og mannkyns, samhengi samtíðar og fortíðar, tengjum við eigin ævisögu og upplifun.
- Skrifum minningarbort, rifjum upp það sem á daga okkar hefur drifið og punktum hjá okkur.
- Verum jákvæð, bjartsýn og glaðlynd.
- Borðum fjölbreyttan mat og munum eftir D-vítamíninu að vetrarlagi.
- Eitt til tvö glös af rauðvíni með kvöldmatnum er hið besta mál. Látum sterka drykki hins vegar eiga sig.