Lífeyrissjóðurinn Stapi höfðaði mál gegn Fjármálaeftirlitinu vegna gjaldtöku fyrir framkvæmd hæfismats. Málavextir voru þeir að FME kallaði stjórnarmann Stapa lífeyrissjóðs í hæfismat. Sjá nánar
Fimm konur og fjórir karlar voru kjörin í aðalstjórn LL á aðalfundi samtakanna þann 30. maí sl. Sjá nánar
Á fræðslufundi sem tileinkaður var fjárfestingarumhverfi lífeyrissjóða fjallaði dr. Ásgeir Jónsson ítarlega um horfur í íslenska hagkerfinu. Hann ræddi um krónuna, höftin, og um horfur á markaði. Sjá nánar
Í skýrslu stjórnar sem Gunnar Baldvinsson formaður flutti, kom fram að samanvegin ávöxtun lífeyrissjóða á árinu 2012 var 7,3% og að heildareignir lífeyrissjóða í mars 2013 nema 143% af vlf. Af heildareignum lífeyrissjóða er hlutfall erlendra eigna í mars 2013 um 23%. Þetta og fleira í ársskýrslu LL. Sjá nánar
Á sérstökum hátíðarfundi í framhaldi af aðalfundi LL flutti Hrafn Magnússon, fyrrverandi framkvæmdastjóri, erindi um aðdraganda að stofnun Landssamtakanna. Sjá nánar
Dagana 5. - 7. júní var á vegum Félagsmálaskóla alþýðu haldið námskeið fyrir stjórnarmenn lífeyrissjóða til undirbúnings hæfismati FME.
Vinnufundur um öryggismál tölvukerfa. Bjarni Júlíusson fjallar um útfærslu gagna og eftirfylgni ferla.
Kynningarfundur um ný lög um neytendalán ætlaður þeim starfsmönnum lsj. sem hafa með höndum lánastarfsemi. Fundarboð var sent öllum lífeyrissjóðum.
Næsti mánaðarpóstur LL kemur út í byrjun september.
Viðtal við Gunnar Baldvinsson formann LL í Viðskiptablaðinu. Sjá nánar
Viðtal við Gunnar Baldvinsson formann LL í Viðskiptablaðinu. Sjá nánar