„Íslendingar sem búið hafa í öðrum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins kunna að eiga þar lífeyrisréttindi án þess að vita af því sjálfir. Hafi þeir samband við Tryggingastofnun sendum við umsókn út og síðan kemur í ljós hvort réttindi eru til staðar eða ekki,“ segir Anna Elísabet Sæmundsdóttir, deildarstjóri erlendra mála hjá Tryggingastofnun.
„Íslendingar sem búa á Íslandi en hafa áður dvalið eða starfað í öðru EES-ríki kunna að hafa áunnið sér rétt til lífeyris ytra og þar með rétt til eftirlaunalífeyris þegar tilskildum aldri er náð eða rétt til örorkulífeyris að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Einfalt er að láta á þetta reyna er viðkomandi nálgast eftirlaunaaldur.
TR sendir erindi/umsókn til samskiptastofnunar erlendis og þar fæst úrskurður að nokkrum tíma liðnum. TR aflar gagna til að láta fylgja með umsókninni, annars vegar upplýsingar frá Þjóðskrá Íslands um hvenær umsækjandinn bjó á Íslandi og hins vegar frá lífeyrissjóðum um iðgjaldagreiðslur viðkomandi.
Reyndar getur komið líka fyrir að samskiptastofnanir okkar erlendis rekist á það í kerfum sínu að einhverjir Íslendingar eigi þar lífeyrisrétt en hafi ekki látið í sér heyra. Slíkar upplýsingar berast okkur og við sendum viðkomandi bréf. Þegar formlegar umsóknir um þessi réttindi hafa verið sendar út er komið á milliliðalaust samband erlendu samskiptastofnananna og Íslendinganna. Stofnanirnar kunna að vilja frekari upplýsingar, til dæmis um hvort viðkomandi séu enn starfandi á vinnumarkaði eða hvort þeir fái greitt úr lífeyrissjóði. Þá svara þeir spurningunum beint.“
Tryggingastofnun er með öðrum orðum samskiptastofnun við hliðstæðar stofnanir í öðrum ríkjum sem Ísland hefur samning við um gagnkvæmar lífeyristryggingar. Allar umsóknir á EES-svæðinu eru milli þessara stofnana og samskiptin eiga sér stað á stöðluðum eyðublöðum á tungumáli þess lands sem erindin sendir.
Það getur tekið hálft til heilt ár að afgreiða umsókn um eftirlaunalífeyri, mjög misjafnlega lengi eftir ríkjum. Afgreiðsla örorkulífeyris tekur enn lengri tíma.
Margir halda að norrænu kerfin séu mjög lík að uppbyggingu eða jafnvel eins en svo er ekki, heldur eru norrænu kerfin býsna mismunandi innbyrðis. Ekkert eitt „norrænt lífeyristryggingamódel“ er til og afgreiðslutími umsókna mislangur eftir ríkjum. Afgreiðsla mála tekur jafnan stystan tíma í Danmörku af þeim norrænu kerfum sem hið íslenska skiptir við.
Þeim hefur fjölgað gríðarlega á örfáum árum sem eru annars vegar búsettir á Íslandi en fá eftirlaun að utan og hins vegar þeim sem búa erlendis og fá eftirlaun frá Íslandi. Fjölga mun áfram í þessum hópum báðum vegna breyttra viðhorfa til búsetu, alþjóðavæðingar í atvinnurekstri og hreyfanleika yfirleitt á vinnumarkaði.
Svo má nefna í framhjáhlaupi nærtæk dæmi um „fólksflutninga á krepputímum“ á Íslandi sem koma síðar við sögu eftirlaunakerfanna svo eftir er tekið. Kynslóðirnar sem fóru til Noregs í atvinnuleit eftir efnahagshrunið 2008 hafa eðlilega ekki skilað sér enn inn í eftirlaunakerfin þar og á Íslandi. Eftirlaunakerfi Svía og Íslendinga hafa hins vegar tekið við fólki sem fór til Svíþjóðar í kjölfar þess að hafís lagðist að landinu og síldin hvarf með tilheyrandi efnahagssamdrætti hér á sjöunda áratugnum!
Dæmi I
Búsett(ur) á Íslandi með eftirlaunarétt í öðru EES-ríki
Dæmi II
Búsett(ur) erlendis með eftirlaunarétt á Íslandi
*Kallað er eftir frekari upplýsingum að utan af ýmsum ástæðum:
Ef eftirlaunagreiðslur erlendis eru hins vegar tengdar vinnu eða miðast við fyrri atvinnutekjur er litið á þær sem tekjur úr skyldubundnum, atvinnutengdum lífeyrissjóðum og þá geta þær skert greiðslur Tryggingastofnunar.
Dæmi III
Íslendingurinn NN búsettur í Svíþjóð fær tilkynningu frá Tryggingastofnun um að hann fái 91.601 kr. á mánuði í eftirlaunalífeyri frá TR.
NN bjó á Íslandi í 16,21 ár á aldrinum 16-67 ára, á 40,53% lífeyrisréttindi hér og fær úrskurð um 91.601 krónu í grunnlífeyri.
Hvaða forsendur liggja þar að baki?
Byggt á samtali við Önnu Elísabetu Sæmundsdóttur og erindum sem þær Halla María Sveinbjörnsdóttir, lögfræðingur Tryggingastofnunar, fluttu á fundi á vegum Landssamtaka lífeyrissjóða í febrúar 2018.
Tryggingastofun – tr.is
Danmörk: borger.dk
Noregur: nav.no
Svíþjóð: pensionsmyndigheten.se
Norræn upplýsingavefur norden.org
Réttindi í hverju EES/EFTA ríki fyrir sig