Hverjar eru konurnar sem tóku að sér að vera „andlit lífeyrissjóðanna“ í auglýsingum sem í sjónvarpi og eru áberandi hér á vefnum Lífeyrismál.is? Margir velta því fyrir sér og sjálfsagt er að svara spurningunni – og þótt fyrr hefði verið!
Já, margir velta fyrir sér konunum glæsilegu sem sást fyrst bregða fyrir í ímyndarauglýsingum lífeyrissjóðanna á sjónvarpsstöðvunum í fyrra.
Hverjar eru þær? Svar: fulltrúar þriggja kynslóða!
Fyrirsæturnar okkar eru sammála um að það hafi bæði verið skemmtileg reynsla og upplifun að taka þátt í fyrirsætuverkefnunum.
Jóhanna Ósk og Ósk léku í myndbandinu sömu konuna á mismunandi æviskeiðum og einmitt þess vegna var leitað að líkum mæðgum í útliti í hlutverkin. Atriðin voru tekin upp á Austurlandi. Dagur Hilmarsson gerði handrit myndbandsins og Lalli Jonsson leikstýrði. Framleiðandi: Republik.
Sunneva Líf kom ekki við sögu myndbandsins en var með á ljósmyndunum sem teknar voru í Reykjavík. Móðir hennar, Fríða María Harðardóttir, vann við að farða fyrirsæturnar. Þegar upp kom sú hugmynd að bæta við fulltrúa ungu kynslóðarinnar í hópinn var ekki farið yfir lækinn til að sækja vatn. Sunneva Líf var sannarlega liðsauki sem smellpassaði í skarðið sem fylla þurfti!
Jóhanna Ósk:
„Ég hafði aldrei gert neitt þessu líkt áður og sagði engum frá uppátækinu en um leið og við sáumst fyrst í sjónvarpinu var byrjað að hringja og spyrja: Varst þetta þú í auglýsingunni áðan? Mér fannst óttalega skrítið að sjá mig á sjónvarpsskjánum í fyrstu en það vandist! Mikið ævintýri og gaman að fá að taka þátt í þessu.“
Ósk:
„Umhverfið okkar á ljósmyndunum vekur athygli margra. Einn ljósmyndari spurði mig hvar í veröldinni við hefðum verið við myndatökurnar, náttúran væri svo sérstök og falleg? Ég svaraði að ekki væri sérlega langt að fara því myndirnar væru teknar í Öskjuhlíð í Reykjavík!
Myndbandið var frumsýnt í RÚV fyrir leik Íslands og Portúgals í Evrópukeppninni í fótbolta karla í júní í fyrra og öll þjóðin límd við sjónvarpsskjáinn. Svo var það sýnt nokkrum sinni á meðan á keppninni stóð og ekki stóð á viðbrögðunum í símtölum, skilaboðum og tölvupóstum!
Mér fannst afskaplega gaman að vera með í verkefninu, frábært fólk sem stóð að þessu öllu og sérstaklega skemmtilegt að gera svona nokkuð með mömmu minni. Þetta vekur eingöngu góðar minningar.
Sunneva Líf Albertsdóttir (stödd í Þórshöfn í Færeyjum):
„Ég var fengin í þetta eftir ábendingu frá vinkonu hennar mömmu og hafði lítið gert af því áður að sitja fyrir í myndatökum. Mjög skemmtilegt að fá að vinna við þetta verkefni í góðum félagsskap.
Núna vinn ég á kaffihúsi í Þórshöfn fram í júlí og í haust byrjar lokaönnin í MH. Ég hef ekkert ákveðið um framhaldið eftir stúdentspróf.
Ég á færeyska ömmu og fleiri skyldmenni hér í Færeyjum. Færeyingar og Íslendingar eru líkir að flestu leyti, þó búa Færeyingar yfir mun meiri náungakærleik, að minnsta kosti miðað við reynsluna af því að vinna á kaffihúsum í Reykjavík og í Þórshöfn. Íslenskir viðskiptavinir eru margir hverjir mjög gagnrýnir og óþolinmóðir en Færeyingar hafa ekki lært að vera kröfuharðir, heldur nægjusamir og rólegir. Ég kem aldrei jafnþreytt heim úr vinnu hér og heima á Íslandi!“