Málstofan var vel sótt og voru flutt mörg áhugaverð framsöguerindi. Allir sem tóku þátt voru á staðnum nema Mikken Svenstrup, CIO hjá danska lífeyrissjóðnum ATP sem er stærsti lífeyrissjóður Danmerkur. Hann fjallaði um hvernig ATP byggir sjálfbærnimarkmið inn í fjárfestingarstefnu sjóðsins og tók dæmi um hvernig sjóðurinn fjárfestir til lengri tíma í fyrirtækum sem eru að hefja vegferð í átt að minni útblæstri og grænni afurðum.
Að loknum framsöguerindum voru vinnustofur:
Umboðið, hlutverk, skyldur og tækifæri lífeyrissjóða. Umsjón, Tómas N. Möller og Helga Melkorka Óttarsdóttir.
Tól og tæki í sjálfbærni, innleiðing UFS í fjárfestingarferli og eigendastefnu.
Eftir að vinnustofum lauk voru pallborðsumræður um efni vinnustofanna.
Unnur Gunnarsdóttir, varaseðlabankastjóri var með lokaorð og samantekt frá deginum.
Mikil ánægja var meðal þátttakenda á málstofunni og ljóst að um afar mikilvægt verkefni er að ræða sem aðeins er rétt að byrja.