Námskeið á vegum Félagsmálaskólans í samstarfi við LL.
Tími: 21. nóvember kl. 9 - 12
Staður: Guðrúnartún 1 / Einnig á fjarfundi.
Leiðbeinandi: Agni Ásgeirsson, forstöðumaður áhættustýringar hjá LSR.
Farið verður yfir hverjar eru áhætturnar í starfi lífeyrissjóða og hvernig skuli meta þær. Rætt verður um regluverk um eftirlitskerfi með áhættu lífeyrissjóða og hvaða skylda hvílir á lífeyrissjóðunum við að greina og meta áhættu sína. Fjallað um hvaða hlutverki áhættustjóri gegnir innan lífeyrissjóðs, í hverju starf hans felst, hvaða valdsvið hann hefur og hver staða hans er í skipuriti.