Miklar endurbætur á heimasíðu Lífeyrissjóðs verkfræðinga.

Heimasíða Lífeyrissjóðs verkfræðinga hefur verið færð í nýjan búning og efni hennar aukið til muna. Jafnframt hefur lífeyrissjóðurinn tekið í notkun lénið lifsverk.is.

Nýtt veffang heimasíðunnar er því www.lifsverk.is. Þá hafa netföng sjóðsins og starfsmanna hans breyst og enda öll á lifsverk.is. Hugbúnaðar- og netþjónustufyrirtækið Spuni ehf. hannaði nýjan búning á síðuna og lagði til gagnagrunnslausnir. Var sú vinna fljótt og vel af hendi leyst og því hyggst sjóðurinn fela Spuna að þróa fleiri þjónustuþætti á síðunni á komandi mánuðum og misserum. Nánar er fjallað um þróun heimasíðunnar og ýmsa nýbreytni í þjónustu sjóðsins í nýútkomnu fréttabréfi hans sem er að finna á heimasíðunni.