Lífeyrissjóður Norðurlands kaupir 14.9% í Íslenskum verðbréfum h.f.

Lífeyrissjóður Norðurlands hefur keypt 14.9% hlut í Íslenskum verðbréfum hf. Hlutafé Íslenskra verðbréfa hf. hefur verið aukið sem nemur hinum nýja hlut. Fyrri hluthafar féllu frá forkaupsrétti sínum.

Frá þessu var gengið þann 30. apríl með samhljóða samþykki allra hluthafa Íslenskra verðbréfa hf. Samhliða þessum kaupum munu Lífeyrissjóður Norðurlands og Íslensk verðbréf hf. hefja samstarf, einkum á sviði eignastýringar fyrir sjóðinn og verður það nánar útfært af samningsaðilum á næstu mánuðum.