Fjármálaeftirlitið birtir yfirlit yfir lífeyriskerfi sjóðanna.

Í skýrslu Fjármálaeftirlitsins um rekstur og efnahag lífeyrissjóðanna fyrir árið 2000 er birt yfirlit yfir réttindauppbyggingu sjóðanna. Stigakerfi með jafnri réttindaávinnslu er öflugast að krónutölu eða 70,9% af heild.

Heildareignir lífeyrissjóðanna voru taldar 566.088 m.kr. í lok síðasta árs. Réttindauppbygging sjóðanna var þessi um síðustu áramót í fjárhæðum: Heildareignir í stigakerfi með jafnri réttindavinnslu, þ.e. óháð aldri sjóðfélaga nam 401.511 m.kr. eða 70,9% (74,4%) af heild. Tölur innan sviga sýna hlutfall í lok árs 1999. Stærsti sjóðurinn í þessum hópi er Lífeyrissjóður verzlunarmanna. Heildareignir í aldursháðu stigakerfi, þ.e. iðgjöld gefa mismunandi réttindi eftir aldri sjóðfélagans, eru 25.638 m.kr. eða 4,5% (2,2%) af heild. Stærsti sjóðurinn í því kerfi er Lífeyrissjóður lækna. Heildareignir í hlutfallskerfi, þ.e. lífeyrir er ákveðinn hluti af launum, eru 103.967 m.kr. eða 18,4% (17,6%) af heild. Stærsti sjóðurinn í því kerfi er Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, B-deild. Í séreign námu heildarreignir um síðustu áramót 34.972 m.kr. eða 6,2% (5,8%) af heild. Þar er Frjálsi lífeyrissjóðurinn stærstur.