Fjármálaeftirlitið hefur hafið ársfjórðungslega birtingu upplýsinga um sundurliðun fjárfestinga samtrygginga- og séreignadeilda lífeyrissjóða og annarra vörsluaðila séreignarsparnaðar.
Fram að þessu hafa upplýsingarnar verið birtar í árlegri útgáfu sem ber heitið Samantekt úr ársreikningum lífeyrissjóða.
Nálgast má upplýsingarnar á vef Fjármálaeftirlitsins undir tölulegar upplýsingar.