Málstofa um samskipti fjárfesta og stjórna félaga

Landssamtök lífeyrissjóðanna efna til málstofu um hlutverk og samskipti fjárfesta og stjórnar/stjórnenda skráðra félaga á Hótel Reykjavík Grand þriðjudaginn 28. janúar. Þar verða erindi og umræður og áhersla lögð á reglur og viðmið sem gilda um samskipti á hluthafafundum og á milli hluthafafunda.

Málstofunni er ætlað að vera vettvangur skoðanaskipta fjárfesta og stjórnenda félaga um hvernig æskilegt sé að haga stefnumörkun og samskiptum þeirra á milli. Frummælendur koma úr ýmsum áttum og miðla af þekkingu og reynslu sinni úr ýmsum greinum í atvinnulífinu, háskólasamfélaginu og lífeyrissjóðakerfinu.

Húsið verður opnað kl. 8:30 og strax að loknu morgunkaffi mun Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, setja málstofuna á slaginu kl. 9:00. Að loknum erindum og pallborðsumræðum verður samantekt úr umræðunum og hádegisverður kl. 12:30. Málstofunni lýkur síðan um kl. 14:00. 

Fundarstjóri málstofunnar verður Bergur Ebbi, rithöfundur og uppistandari.

08:30

Húsið opnað
Morgunkaffi

09:00

Setning frá Landssamtökum Lífeyrissjóða
Þórey S. Þórðardóttir

Þórey hefur gengt starfi framkvæmdastjóra Landssamtaka lífeyrissjóða frá árinu 2011. Hún hefur víðtæka reynslu af íslenska lífeyrissjóðakerfinu en um árabil gegndi hún starfi forstöðumanns réttindamála hjá LSR. Þórey er hæstaréttarlögmaður og með próf í verðbréfaviðskiptum.

09:10

Hvað þýða þessar skammstafanir og nýju reglur fyrir fjárfesta og hlutafélög: SRD II og CSRD?
Tómas N. Möller

Um áskoranir og tækifæri. Hvað þýða nýjar reglur um virkari þátttöku hluthafa og sjálfbærniupplýsingar fyrir samskipti fjárfesta og félaga?

Tómas N. Möller er yfirlögfræðingur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna og sérfræðingur á sviði stjórnarhátta, félagaréttar, verðbréfaviðskipta og samþættingar sjálfbærni við rekstur og umsýslu eignasafna. Hann hefur víðtæka reynslu af framkvæmd laga og reglna um starfsemi lífeyrissjóða. Áður starfaði Tómas m.a. á lagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins, í fastanefnd Íslands gagnvart ESB í Brussel, sem forstöðumaður verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Landsbankans og lögfræðingur LSR. Auk þess hefur hann víðtæka reynslu af stjórnarstörfum. Tómas leggur áherslu á samþættingu laga og reglna við skilvirkan rekstur og virðissköpun í starfsemi fyrirtækja og lífeyrissjóða.

09:30

Leiðarljós eða villuljós fyrir hlutafélög?
Þröstur Olaf Sigurjónsson

Áhrif leiðbeininga um stjórnarhætti, hluthafastefnur og yfirlýsingar einstakra hluthafa um störf stjórna félaga.

Þröstur Olaf er prófessor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Sérfræðisvið hans eru stjórnarhættir fyrirtækja, stefnumótun og viðskiptasiðfræði. Þröstur hefur leitt alþjóðleg rannsóknarverkefni og hefur í slíku samstarfi gefið út á annað hundrað greina, bóka og bókarkafla. Hann kennir í símenntun fyrir stjórnendur og sérfræðinga og sinnir ráðgjöf fyrir fyrirtæki á fræðasviði sínu. Þröstur lauk doktorsprófi við Copenhagen Business School og MBA frá IESE. Enn fremur lauk hann BA gráðu í heimspeki og Cand. Oecon. frá Háskóla Íslands. Hann starfaði áður fyrir KPMG á Íslandi og PWC í Danmörku.

09:50

Hver á aðkoma hluthafa að málefnum hlutafélaga að vera?
Dr. Helga Kristín Auðunsdóttir

Umboðsskylda, umboðsvandi og valdskipting innan hlutafélaga í ljósi aukinna hluthafaréttinda og kenninga um haghafaræði og hluthafaræði.

Dr. Helga Kristín Auðunsdóttir starfar sem lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Hún er með doktorsgráðu í lögfræði frá Fordham háskóla í New York. Í doktorsnámi sínu við rannsakaði Helga m.a. stjórnarhætti fyrirtækja út frá fjárfestingum vogunarsjóða. Hún lauk laganámi frá Háskólanum á Bifröst árið 2006 og LL.M. gráðu í lögfræði frá háskólanum í Miami árið 2010. Helga Kristín situr í stjórn Kviku banka og í stjórn TM trygginga hf. Einnig er hún stjórnarformaður Sjálfbærni- og loftslagsréttarstofnunar Háskólans í Reykjavík. 

10:10

Pallborðsumræður

Finnur Oddsson, forstjóri Haga

  • Finnur er forstjóri Haga en hann tók við starfinu þann 1. júlí 2020. Hann er með BA próf í sálfræði frá Háskóla Íslands, M.A. og Ph.D gráðu í sömu grein frá West Virginia University í Bandaríkjunum og auk þess AMP í viðskiptafræði frá IESE Viðskiptaháskólanum í Barcelona. Á árunum 2013 til 2020 var Finnur forstjóri hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Origo hf. Hann starfaði um árabil sem lektor við Háskólann í Reykjavík og stýrði þar meðal annars uppbyggingu á MBA námi HR og Stjórnendaskóla HR. Hann sat í háskólaráði HR frá 2009 til 2017 og var formaður ráðsins til ársins 2014. Þá starfaði Finnur um fimm ára skeið sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Finnur situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Hagar verslanir ehf., Olís ehf., Noron ehf., Eldum rétt ehf., Stórkaup ehf., P/F SMS, Klasi ehf., Mynto ehf., Effectus ehf. og Norðurver ehf.

Ingunn Agnes Kro, formaður stjórnar RARIK

  • Ingunn er stjórnarformaður Rarik og Votlendissjóðs og situr auk þess í stjórnum Sjóvár, Iceland Seafood og Freyju, framtakssjóðs í umsjá Kviku eignastýringar. Áður starfaði Ingunn sem framkvæmdastjóri Jarðvarma, eignarhaldsfélags utan um helmingseign 14 lífeyrissjóða í HS Orku, og þar áður sem framkvæmdastjóri skrifstofu- og samskiptasviðs, yfirlögfræðingur og regluvörður hjá Skeljungi. Ingunn er með BA og MA próf í lögfræði og MBA gráðu frá Háskóla Íslands, auk verðbréfaréttinda.

Helga Hlín Hákonardóttir, eigandi Strategíu og í stjórn Íslandsbanka

  • Helga er eigandi og ráðgjafi hjá Strategíu frá árinu 2013 - með yfir 28 ára reynslu af störfum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og við lögfræðiráðgjöf og stjórnarhætti. Hefur sérhæft sig í ráðgjöf við fjárfesta, stjórnir og opinbera aðila á sviði lögfræði, skipulags og stjórnarhátta, áhættustýringar og breytingastjórnunar. Hefur veitt stofnanafjárfestum, opinberum aðilum og stjórnum ráðgjöf við mörkun, innleiðingu og hlítni við eigandastefnur. Hefur gegnt fjölmörgum stjórnar-og stjórnunarstöðum hjá fjármálafyrirtækjum og skráðum fyrirtækjum á markaði og situr m.a. í stjórn Íslandsbanka og Rue de net.
10:40

Samtals- og kaffihlé

11:00

Hvað markar völlinn fyrir samskipti hluthafa og stjórna félaga?
Harald Gunnar Halldórsson

Hlutverk og samspil stjórna og hluthafafunda og einstakra hluthafa við ákvarðanatöku á vettvangi skráðra félaga.

Harald Gunnar er lögmaður með rúmlega 15 ára starfsreynslu á fjármálamörkuðum. Hann starfar á eignastýringarsviði Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins þar sem hann kemur m.a. að mörkun og framkvæmd eigendastefnu sjóðsins. Harald lauk námi frá Lagadeild Háskóla Íslands 2010, hefur próf til að stunda verðbréfaviðskipti og er viðurkenndur stjórnarmaður. Hann hefur setið í fjölda nefnda, ráða og starfshópa á vegum félagasamtaka og opinberra aðila í tengslum við löggjöf og framkvæmd hennar á fjármálamörkuðum.

11:20

Starfskjarastefna félaga
Hrund Rudolfsdóttir

Gildandi reglur skv. hlfl. og áhrif SRD II. Hvað skiptir máli til að samþætta vel hagsmuni félags og fjárfesta/hluthafa? Hvar liggja mörkin varðandi hlutverk stjórnar og hluthafa?

Hrund Rudolfsdóttir situr í dag í stjórnum tveggja skráðra fyrirtækja, Skaga og Nova, og er formaður starfskjaranefndar beggja. Hún er einnig stjórnarformaður Veitna og situr í stjórn Expectus. Áður hefur hún setið í stjórn Eimskip, var stjórnarformaður Stefnis í 10 ár, Lífeyrissjóðs verzlunarmanna o.s.frv. Hrund hefur víðtæka reynslu af stjórnun fyrirtækja, er í dag framkvæmdastjóri Sólvalla rekstrafélags, var áður m.a. forstjóri Veritas 2013-2023, framkvæmdstjóri mannauðs hjá Marel 2009-2013 og framkvæmdastjóri Lyf&heilsu / Milestone 2003-2009. Hún er viðskiptafræðingur frá HÍ og M.sc. ( International Marketing&Management) frá Copenhagen Business School.

11:40

Nýjar evrópskar reglur um sjálfbærniupplýsingar fyrirtækja
Heiða Óskarsdóttir

Leiðir aukið gagnsæi upplýsinga til breytinga á stjórnarháttum fyrirtækja?

Heiða er sjálfstætt starfandi lögmaður og nefndarmaður í úrskurðarnefnd í vátryggingamálum. Hún er með embættispróf í lögfræði og MBA gráðu frá Háskóla Íslands. Heiða hefur yfir 20 ára reynslu af vátryggingamarkaði og gegnt þar ýmsum lykilstöðum, m.a. sem forstöðumaður tjónasviðs, yfirlögfræðingur og regluvörður hjá Verði tryggingum hf.

12:00

Pallborðsumræður

Kristín Pétursdóttir‚ varaformaður stjórnar Arion banka og sjálfstætt starfandi ráðgjafi og stjórnendaþjálfari

  • Kristín var annar stofnenda Auðar Capital og starfaði sem forstjóri þess fyrirtækis frá 2007 til 2013 og sem stjórnarformaður frá 2013-2017 (síðar Virðing hf.) og stjórnarformaður Kviku frá 2018-2020. Hún var forstjóri Mentor hf. 2015-2017, aðstoðarforstjóri Singer & Friedlander 2005-2007 og framkvæmdarstjóri fjárstýringar Kaupþings banka 1997-2005. Kristín hefur setið í fjölmörgum stjórnum fyrirtækja auk stjórna Samtaka atvinnulífsins og Samtaka fjármálafyrirtækja. Í dag situr hún í stjórn Arion Banka, GRID og Miðeindar. Kristín er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA gráðu frá Norges Handelshöyskole.


Óskar Magnússon, stjórnarformaður Eimskips

  • Óskar Magnússon hefur verið stjórnarformaður Eimskips undanfarin þrjú ár og í stjórn félagsins frá 2019. Hann er lögfræðingur að mennt, hæstaréttarlögmaður , með masterspróf frá George Washington University. Hann hefur meðal annars verið, forstjóri Hagkaups, Íslandssíma, Vodafone, Tryggingamiðstöðvarinnar og útgefandi Árvakurs. Óskar hefur setið í stjórnum margra atvinnufyrirtækja, m.a. verið stjórnarformaður Olís, í stjórn Húsasmiðjunnar, Pennans, Íslensks markaðar, Kringlunnar og í stjórn Samherja undanfarin 25 ár. Eftir hann hafa komið út átta bækur hjá Forlaginu undanfarin ár, skáldsögur og smásagnasöfn. Hann er bóndi og rithöfundur og býr á Sámstaðabakka í Fljótshlíð.


Jón Sigurðsson, forstjóri fjárfestingarfélagsins Stoða

  • Jón Sigurðsson er forstjóri fjárfestingafélagsins Stoða. Jón hefur starfað á íslenskum og erlendum fjármálamarkaði í yfir 20 ár, ýmist sem stjórnandi, fjárfestir, ráðgjafi eða stjórnarmaður. Jón er stjórnarformaður Símans auk þess að sitja í stjórn First Water og Bláa Lónsins. Áður hefur Jón setið í stjórnum fjölmargra félaga, skráðra jafnt sem óskráðra, innanlands sem og erlendis, þar á meðal hollenska drykkjarvöruframleiðandanum Refresco.
12:30

Samantekt umræðustjóra
Bergur Ebbi

Bergur Ebbi er rithöfundur, ljóðskáld og ritgerðarsmiður, með fjölþættan bakgrunn úr heimi lista, viðskipta og blaðamennsku. Meðal umfjöllunarefna í verkum Bergs Ebba er tæknisaga og áhrif hennar á sjálfsmynd og ákvarðanatöku. Bergur Ebbi er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og með MDes gráðu í Strategic Foresight and Innovation frá OCAD Háskólanum í Toronto í Kanada auk þess að leggja stund á lögfræði og listasögu við Université de Cergy Pontoise í París. Meðal verka Bergs Ebba eru bækurnar Stofuhiti (2017) og Skjáskot (2019).

12:45

Hádegisverður og samtal