Nú lifum við lengur og betur og breytingar á lífslíkutöflum eru í farvatninu. LL setti á laggirnar hóp með aðilum frá fræðslu- og samskiptanefnd til þess að kynna fyrir almenningi væntanlegar breytingar. Snædís Ögn Flosadóttir hefur leitt vinnu hópsins og kynnti fyrir stjórn LL tillögur á fundi fyrr í haust þar sem m.a. var lagt til að hafa sérstaka fræðslu fyrir starfsmenn lífeyrissjóða. Stjórn ákvað að hrinda þeirri fræðslu af stað þrátt fyrir að tímasetning innleiðingar liggi ekki fyrir.
Í nóvember verður hádegisfræðsla í samstarfi við Benedikt Jóhannesson tryggingastærðfræðing.
Markmiðið með fræðslufundunum er að búa starfsmenn undir þá umræðu sem verður þegar nýjar lífslíkutöflur verða uppfærðar og innleiddar.