Sjónvarpsstöðin Hringbraut frumsýnir næstkomandi sunnudagskvöld 1. desember viðtalsþátt sem ber yfirskriftina Lífeyrissjóðir í 50 ár. Frumsýning hefst kl. 21 og þátturinn verður endursýndur síðar um kvöldið og oftar á næstu vikum.
Þátturinn er samvinnuverkefni Hringbrautar og Landssamtaka lífeyrissjóða. Stjórnandi er Sigmundur Ernir Rúnarsson. Hann vann líka að handriti þáttarins og undirbúningi ásamt Atla Rúnari Halldórssyni og Þóreyju S. Þórðardóttur. Sýningin tekur um klukkustund og í hraðri yfirferð er tæpt á fjölmörgu er varðar lífeyrissjóðakerfið og samfélagið.
Við hæfi er að frumsýna þáttinn að kvöldi fullveldisdagsins enda er þess minnst um þessar mundir að hundrað ár eru liðin frá stofnun lífeyrissjóðs embættismanna 1919, forvera Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, LSR, aðeins einu ári eftir að Íslendingar lýstu yfir fullveldi.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði í afmælisveislu LSR 28. nóvember að stofnun lífeyrissjóða í kjölfar fullveldisins hefði með öðru sýnt að Íslendingar vildu vera „alvöru ríki, þjóð meðal þjóða.“
Svo vill til að 2019 er tvöfalt afmælisár í lífeyrismálum þjóðarinnar. Liðin er hálf öld frá því undirritaðir voru kjarasamningar á almennum vinnumarkaði þar sem kveðið var á um skylduaðild að lífeyrissjóðum. Landssamtök lífeyrissjóða efndu í vor til hátíðarsamkoma í Reykjavík og á Akureyri þar sem sýnd var heimildarmyndin Lífeyrissjóðaöldin 1919-2019. Hún var samstarfsverkefni Landssamtaka lífeyrissjóða og Hringbrautar og hugmynd kviknaði þá um að búa til viðtalsþátt á svipuðum nótum í framhaldinu til sýningar seinna á árinu.
Nýi þátturinn er því á sinn hátt lokaviðburður þessa mikla afmælisárs. Þar koma eftirtaldir fram: