Árið 2019 var lífeyrissjóðum landsmanna sérlega hagstætt þegar horft er til ávöxtunar eigna þeirra. Þannig áætla Landssamtök lífeyrissjóða að raunávöxtun lífeyrissparnaðar landsmanna sé að meðaltali vel yfir 11% og er þá miðað við vegið meðaltal ávöxtunar alls eignasafns sjóðanna 2019.
Þetta er mikill viðsnúningur frá árinu 2018 þegar hrein raunávöxtun var 1,95% að jafnaði og mun lakari en 2017 þegar sambærileg tala var 5,38%. Ávöxtunartölur 2018 og 2017 komu fram í tilkynningu frá Fjármálaeftirlitinu 20. júní 2019 og jafnframt var þar tekið fram:
„Alþjóðlega hefur hrein ávöxtun lífeyrissjóða 2018 verið undir langtímamarkmiðum þeirra og í flestum löndum var ávöxtun neikvæð. Aðeins fimm lönd sýna jákvæða ávöxtun og þar á meðal Ísland.“
Nokkrir lífeyrissjóðir vinna enn að ársuppgjörum sínum og því liggja ekki fyrir endanlegar tölur um ávöxtun 2019. Ljóst er samt að afkoman í heild var mjög góð sem skýrist bæði á mörkuðum heima og heiman. Erlend hlutabréf hækkuðu mest en innlend skuldabréf skiluðu líka mjög góðri ávöxtun. Helstu drifkraftar þar voru lækkandi raunvextir og lækkandi verðbólguálag sem stuðlaði að hækkandi virði skuldabréfa.
Landssamtök lífeyrissjóða halda úti vefnum Lífeyrismál.is sem segja má að sé upplýsingatorg um lífeyrismál í víðum skilningi. Þar er meðal annars að finna aðgengilegar upplýsingar um raunávöxtun lífeyrissjóða í samtryggingu og séreign.